Ísland getur margfaldað raforkuframleiðsluna. Hátt í 150 ónýttir virkjunarkostir hafa verið kortlagðir sem gætu skilað yfir 80 TWst á ári, fjórfalt það sem við framleiðum í dag. Samt hefur framleiðslan staðið í stað frá 2017. Markmiðið á að vera tvöföldun fyrir 2040 ⚡🧵
2
7
77
9,928
Tillögur Viðskiptaráðs: 🚫 Rammaáætlun verði lögð af 📝 Almennt leyfisferli og ein kæruleið 🔌 Flutningskerfið byggt á undan eftirspurn 💨 Vindorka við miðlunarlón í forgang 🎯 Tvöföldun raforkuframleiðslu fyrir 2040 opinbert markmið
1
5
1,548
Ég tók nýlega þátt í umræðum á Samstöðinni þar sem því var haldið fram að fólk með fjármagnstekjur greiddi minna en aðrir í sameiginlega sjóði, enda væri fjármagnstekjuskattur aðeins 22%. En sú tala segir aðeins hálfa söguna. Skatturinn leggst á nafnávöxtun, ekki raunávöxtun. Hann er því líka lagður á verðbætur, sem eru ekki tekjur heldur bætur fyrir virðisrýrnun peninganna. Sá sem á eina milljón í sparnað og fær 3% raunávöxtun í 5,9% verðbólgu greiðir um 20 þúsund krónur í skatt umfram frítekjumark. Raunávöxtunin var aðeins 30 þúsund krónur. Ríkið tekur því tvo þriðju hennar, ekki 22%. Berum saman Norðurlöndin með sömu raunávöxtun og meðalverðbólgu hvers lands frá aldamótum. Þá tekur ríkið 59% af raunávöxtun sparnaðar á Íslandi. Það er næstmest á Norðurlöndum, þótt gjaldhlutfallið sé með þeim lægstu. Munurinn liggur í verðbólgunni. 1/3
5
3
82
2,450
Arður er svo skattlagður tvisvar. Fyrirtækið greiðir fyrst 20% tekjuskatt af hagnaði og eigandinn síðan 22% af því sem eftir stendur. Af hverjum 100 krónum í hagnað fara því 37,6 krónur í skatt. Þegar verðbólgan bætist við verður myndin enn dekkri. Við 3% raunávöxtun og 5,9% verðbólgu fer skattur á arð yfir raunávöxtunina. Fjármagn er auk þess hreyfanlegra en vinnuafl og leitar þangað sem ávöxtunin er best. Hærra skatthlutfall skilar því ekki sjálfkrafa meiri tekjum, en getur dregið úr sparnaði og fjárfestingu sem standa undir framleiðni og launum til lengri tíma. Skatthlutfallið 22% segir því aðeins hálfa söguna um skattbyrði fjármagns. Umræða um sanngjarnan hlut fjármagnseigenda þarf að byggja á því hvað skatturinn tekur í raun, ekki bara á skatthlutfallinu. 2/3
1
16
325
Skrifaði grein um þetta á Vísi í dag: visir.is/g/20262946546d/half…
17
234
Björn Brynjúlfur retweeted
Verði nýtt frumvarp um náttúru- og innviðagjald að lögum verður Ísland eina Norðurlandið þar sem ríkið leggur sérstakt gjald á erlenda ferðamenn fyrir aðgang að náttúruperlum 💸🏔️ Gjaldið á Gullna hringinn: • bætist ofan á gistináttaskatt, innviðagjald á skemmtiferðaskip, kílómetragjald, varaflugvallagjald og fyrirhugaða hækkun VSK á baðlón • kallar á nýtt innheimtu- og eftirlitskerfi hjá Ferðamálastofu • varðar 60.000 kr. sekt ef 3.000–4.500 kr. gjaldið er ekki greitt, án tillits til ásetnings • rennur beint í ríkissjóð án tengsla við svæðið og kemur í stað bílastæðagjalda sem nýttust til uppbyggingar og rekstrar. Einfaldari leiðir eru færar. Umsögn Viðskiptaráðs: vi.is/umsagnir/gjaldtaka-a-g…
4
25
864
Fjárlög 2027 gera ráð fyrir 5 ma. kr. afgangi, þeim fyrsta frá 2018. Það er fagnaðarefni. Enn eru víða tækifæri til að hagræða og draga úr umfangi ríkisins í hagkerfinu. Viðskiptaráð leggur fram 46 tillögur sem gætu bætt afkomu ríkissjóðs um 110 ma. kr. á ári. 🏛️🧵
1
3
50
2,340
Tillögur Viðskiptaráðs skila 19 ma. kr. strax á næsta ári, m.a. með afnámi stofnframlaga. Til lengri tíma skila þær 92 ma. kr. til viðbótar með sölu ríkiseigna, fækkun stofnana úr 147 í 99 og jöfnun réttinda við einkageirann.
1
14
268